Wilson óvænt að semja aftur - Man Utd bætir öðrum miðjumanni Forest á óskalistann - City að klára kaup - Real fylgdist með Tonali
   mán 09. mars 2026 10:30
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Snýr Aron Einar aftur heim í Þór? - „Myndi rífa þakið af Boganum“
Aron lék sex leiki með Þór sumarið 2024.
Aron lék sex leiki með Þór sumarið 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samningur Arons Einars Gunnarssonar við Al Gharafa í Katar rennur út í sumar. Í útvarpsþætti Fótbolta.net á laugardaginn velti Haraldur Árni Hróðmarsson, sérstakur álitsgjafi um Bestu deildina, því fyrir sér hvort að Aron Einar Gunnarsson myndi mögulega snúa aftur heim í Þór.

Aron er uppalinn Þórsari en hann var á mála hjá Þór sumarið 2024. Hann kom við sögu í sex leikjum með uppeldisfélaginu það sumar en Þór endaði í 10. sæti deildarinnar.

„Þetta er eitthvað sem gæti gerst líka. Þessi skipti voru eitthvað sem mér datt í hug þegar ég sá að hann var að renna út af samningi. Skyldi hann koma myndi það nú rífa þakið af Boganum og gæti orðið mjög áhugavert,“ sagði Haraldur Árni.

„Hann var þarna fyrir tveimur árum í Lengjudeildinni. Það var kannski ekki jafn mikil sprengja og menn vonuðust eftir,“ sagði Valur Gunnarsson jafnframt.

Þór vann Lengjudeildina á síðustu leiktíð og tryggði sér þar með farseðil upp í Bestu deildina. Í síðustu ótímabæru spá deildarinnar, sem var opinberuð í útvarpsþættinum á laugardaginn, er Þórsurum spáð 10. sæti.
Útvarpsþátturinn - Mánuður í Bestu deildina
Athugasemdir
banner
banner
banner