Landsliðsmaðurinn Ögmundur Kristinsson var í gær kynntur sem nýr leikmaður hjá Víkingi. Það vakti athygli að hann var með treyju númer 47 á kynningarmynd Víkings og mun hann klæðast þeirri treyju í sumar.
En af hverju 47?
En af hverju 47?
„Það er nú bara vegna þess að stráknum mínum fannst það manna leiðinlegast þegar ég skildi við Val og það stefndi í að ég væri hættur í fótbolta. Hann er í Stjörnunni og þar er númeradráttur þegar menn fá treyjur. Hann fékk treyju númer 47 og ég ákvað að gefa til baka og taka sama númer og hann, þar sem hann er alltaf búinn að taka sama númer og ég," segir Ögmundur.
Er guttinn líka markmaður?
„Hann er í 7. flokki þannig það er ekki komið á það stig, hann tekur þá ákvörðun þegar hann verður aðeins eldri. Ég held það sé fínt að prófa aðrar stöður til að byrja með. Nútímamarkmaður þarf líka að geta eitthvað í fótbolta, þannig það er fínt að byrja allavega sem útispilari," segir markmaðurinn.




