Fotbolti.net
09.07.20 - 21:10
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Pogback og met slegið í fjórða þriggja marka sigri United í röð

Langþráð mark hja Pogba.

Langþráð mark hja Pogba.

Canon

Mynd: Getty Images

Aston Villa 0 - 3 Manchester Utd
0-1 Bruno Fernandes ('27 , víti)
0-2 Mason Greenwood ('45 )
0-3 Paul Pogba ('58 )
Manchester United sigraði sinn fjórða deildarleik í röð þegar liðið sigraði Aston Villa, 0-3, á Villa Park. Þetta er þriðji 3-0 sigur United í síðustu fjórum deildarleikjum.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, stillti upp óbreyttu byrjunarliði fjórða leikinn í röð og kom galdrakarlinn frá Portúgal, Bruno Fernandes, gestunum yfir á 27. mínútu með marki úr umdeildri vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Sjá einnig:
Sjáðu umdeildan vítaspyrnudóm og mark Greenwood
Fernandes bætti met í kvöld

Mason Greenwood bætti við öðru marki United undir lok fyrri hálfleiks og það var Paul Pogba sem skoraði þriðja mark United eftir hornspyrnu Fernandes. Markið var fyrsta mark Pogba frá því hann skoraði gegn West Ham fyrir 453 dögum. Stoðsending Fernandes var hans sjötta í fyrstu tíu deildarleikjum sínum í úrvalsdeildinni. Hann hefur skorað sjö mörk í þeim og hefur komið að alls þrettán mörkum sem er met.

United sigraði Sheffield United og Brighton 3-0. Svo sigraði liði Bournemouth 5-2 og nú Aston Villa 3-0. Þetta er því fjórði þriggja marka sigur United í deildinni í röð.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
England: Pogback og met slegið í fjórða þriggja marka sigri United í röð
Canon

Mynd: Getty Images

England: Pogback og met slegið í fjórða þriggja marka sigri United í röð
Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.