Fotbolti.net
09.07.26 - 15:05
Kári Snorrason

Ed Sheeran með einkatónleika fyrir enska landsliðið

Sheeran er mikill stuðningsmaður Ipswich.

Sheeran er mikill stuðningsmaður Ipswich.

Canon

Mynd: EPA

Hinn sívinsæli tónlistarmaður Ed Sheeran heimsótti herbúðir enska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í gærdag þar sem hann flutti nokkur lög fyrir hópinn.

Netverjar hafa margir haft gaman af viðbrögðum leikmanna og nefna þar helst John Stones og Morgan Rogers sem virtust hafa takmarkaðan áhuga á söngli Sheeran.

Ef marka má viðbrögðin eftir að hann flutti lagið, Castle on the Hill, má gefa sér það að liðið hafi þó tekið vel í tónlistarmanninn vinsæla en hann hlaut mikið lófatak frá hópnum.
England mætir Noregi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins klukkan 21:00 á laugardag í Miami.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.