Fotbolti.net
09.07.26 - 11:00
Kári Snorrason

Norska liðið fann sig knúið til að skipta um hótel

Ósáttir með hótelið.

Ósáttir með hótelið.

Canon

Mynd: EPA

Norska landsliðið fann sig knúið til að skipta um hótel í Fort Lauderdale í Flórída eftir að hafa dvalið í aðeins eina nótt á hótelinu.

Noregur mætir Englandi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins klukkan 21:00 á laugardag.
Veikindi herja á herbúðir Noregs
TENGT EFNI

Veikindi herja á herbúðir Noregs

Umsjónarmaður norska liðsins segir í samtali við VG í Noregi að liðið hafi verið einróma í þeirri ákvörðun um að skipta um hótel.

Hann segir jafnframt umhverfið á hótelinu hafa verið langt frá því sem þeir hefðu kosið og nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða, án þess að fara nánar út í hvernig aðstaðan hafi verið.

Liðið og starfsteymið hefur nú fært sig yfir á dýrara hótel og segir umsjónarmaðurinn hótelbrasið hafa haft lítil áhrif á leikmenn í aðdraganda leiksins á laugardag.

Haaland hefur skorað sjö mörk á mótinu.

Haaland hefur skorað sjö mörk á mótinu.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.