09.08.12 - 10:35
Magnús Már Einarsson
Michael Kightly og Geoff Cameron til Stoke (Staðfest)

Michael Kightly.

Mynd: Getty Images

Michael Kightly.

Mynd: Getty Images
Stoke City hefur keypt kantmanninn Michael Kightly frá Wolves en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Kightly er 26 ára gamall en hann kom til Wolves frá utandeildarliðinu Grays Athletic í nóvember 2006.

Hann stóð sig vel með Wolves undir lok síðasta tímabils en náði ekki að hjálpa liðinu að forðast fall.
Stoke hefur einnig formlega fengið varnarmanninn Geoff Cameron í sínar raðir frá Houston Dynamo.
Þessi 27 ára gamli leikmaður er kominn með atvinnuleyfi á Englandi og því er hann formlega orðinn leikmaður Stoke.

Heimild: BBC