Fotbolti.net
09.08.12 - 16:30
Daníel Freyr Jónsson

Valencia búið að kaupa Sergio Canales (Staðfest)

Sergio Canales.

Sergio Canales.

Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur staðfest sölu miðjumannsins Sergio Canales til Valencia.
Canales, sem er 21 árs gamall Spánverji, var á láni hjá Valencia á síðustu leiktíð á tveggja ára lánssamningi. Samningurinn hefur nú hinsvegar verið gerður endanlegur og er talið að Valencia hafi nýtt sér klásúlu sem gerði þeim kleyft að kaupa hann fyrir 12 milljónir evra.

Real Madrid hefur nú rétt á að kaupa Canales til baka á 18 milljónir á næstu árum.

Canales skrifaði undir fimm ára samning hjá Valencia og er hann annar miðjumaðurinn sem Valencia fær frá Real Madrid í sumar, en áður hafði félagið keypt Fernando Gago.

Hann þykir mikið efni og var keyptur til Real frá Racing Santander árið 2010 og hefur hann leikið með öllum yngri landsliðum Spánverja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.