09.08.12 - 20:08
Ívan Guðjón Baldursson
David Pizarro kominn til Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
David Pizarro er kominn til Fiorentina eftir að hann rifti samning sínum hjá AS Roma og stóðst læknisskoðun í Flórens.
Pizarro er miðjumaður frá Síle sem var á láni hjá Manchester City síðustu sex mánuði eftir að hafa dottið úr byrjunarliðinu hjá Roma.

Hann samþykkti að rifta samningi sínum við Roma og er nú genginn til liðs við Fiorentina á frjálsri sölu.
,,ACF Fiorentina er búið að fá David Marcelo Pizarro Cortes til sín frá AS Roma,\" stendur í yfirlýsingu Fiorentina.
Pizarro verður 33. ára gamall í næsta mánuði en hann var samningsbundinn Udinese og Inter áður en hann fór til Roma.