Fotbolti.net
09.08.18 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson

Brighton fær Montoya (Staðfest) - Var hjá Barca í 15 ár

Brighton fær Montoya (Staðfest) - Var hjá Barca í 15 ár
Canon

Mynd: Getty Images

Brighton er búið að staðfesta kaupin á spænska bakverðinum Martin Montoya sem kemur frá Valencia.
Montoya er 27 ára og skrifar undir fjögurra ára samning við enska félagið eftir tvö góð ár með Valencia.

Fyrir það var Montoya leikmaður Barcelona. Hann ólst upp hjá Barca frá 9 ára aldri og spilaði 67 leiki fyrir aðalliðið áður en samningur hans rann út 2016.

Montoya þótti gífurlega efnilegur á sínum tíma og var mikilvægur hlekkur í U19 og U21 landsliði Spánar frá 2010 til 2013.

Hann hefur þó aldrei spilað fyrir A-landsliðið en á fimm leiki að baki fyrir Katalóníu.

Fulham vildi einnig fá Montoya til sín en bakvörðurinn hafnaði nýliðunum til að ganga til liðs við Brighton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.