09.08.18 - 18:57
Ívan Guðjón Baldursson
Jordan Ayew til Crystal Palace - Andre til Fenerbahce (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Swansea City hefur samþykkt að lána Ayew bræðurna frá félaginu út tímabilið. Þeir vilja ekki spila í Championship deildinni.
Andre mun leika fyrir Fenerbahce í tyrkneska boltanum á meðan Jordan fer til Crystal Palace.
Jordan var einn af bestu leikmönnum Swansea á síðasta tímabili og var Andre fenginn frá West Ham í síðasta janúarglugga. Þeir voru þó ekki nóg til að bjarga félaginu frá falli.
Crystal Palace hefur átt góðan félagaskiptaglugga og er búið að næla í miðjumennina öflugu Max Meyer og Cheikhou Kouyate.
Sumir telja Jordan Ayew þó vera hrakfallabálk enda hefur hann fallið með síðustu fjórum liðum sem hann hefur spilað fyrir.