Fotbolti.net
09.08.18 - 18:16
Ívan Guðjón Baldursson

Luciano Vietto til Fulham frá Atletico (Staðfest)

Luciano Vietto til Fulham frá Atletico (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nýliðar Fulham voru að bæta Luciano Vietto við leikmannahópinn sinn rétt í þessu. Hann er þriðji leikmaðurinn sem félagið staðfestir á lokadegi félagaskiptagluggans.
Markvörðurinn Sergio Rico og bakvörðurinn Joe Bryan voru staðfestir í dag en Vietto er argentínskur sóknarmaður sem kemur á lánssamning frá Atletico Madrid.

Vietto vakti athygli á sér þegar hann gerði 20 mörk í 48 leikjum með Villarreal fyrir fjórum árum. Hann var keyptur yfir til Atletico Madrid en náði sér ekki á strik þar.

Í kjölfarið var hann lánaður til Sevilla og Valencia en þótti ekki nægilega góður og fékk minni spilatíma en hann hafði vonast eftir.

Vietto er aðeins 24 ára gamall og á fjóra leiki að baki fyrir U20 landslið Argentínu.

Það þykir augljóst að Fulham ætlar ekki að falla úr ensku úrvalsdeildinni en félagið er búið að krækja í leikmenn á borð við Jean Michael Seri og Andre Schürrle í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.