09.08.18 - 19:13
Ívan Guðjón Baldursson
Timothy Fosu-Mensah lánaður til Fulham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Timothy Fosu-Mensah er fjórði leikmaðurinn sem Fulham fær til sín á gluggadeginum og er búist við að félagið staðfesti einn leikmann til viðbótar áður en dagurinn er úti.
Glugginn er búinn að loka en það eru enn nokkur félagaskipti sem geta gengið í gegn.
Fosu-Mensah er tvítugur varnarmaður sem kemur á láni frá Manchester United.
Hann spilaði 24 leiki á láni hjá Crystal Palace í fyrra og hefur komið við sögu í 21 leik með Man Utd.
Fosu-Mensah er fjölhæfur og getur einnig spilað sem miðjumaður. Hann hefur spilað þrjá A-landsleiki fyrir Holland þrátt fyrir ungan aldur og á rétt tæplega 40 leiki að baki fyrir yngri landsliðin.