09.08.18 - 18:45
Ívan Guðjón Baldursson
Watford stal Quina frá West Ham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Watford er búið að næla í táninginn Domingos Quina frá West Ham United. Hann skrifar undir fjögurra ára samning.
Quina verður 19 ára í nóvember og kemur frá Gíneu-Bissá en hefur spilað tæplega 40 leiki fyrir yngri landslið Portúgal og skorað í þeim ellefu mörk.
Quina er sóknartengiliður sem hefur verið partur af unglingastarfi Benfica, Chelsea og West Ham.
Hann kom við sögu í fjórum leikjum með West Ham á síðasta tímabili, þremur í deildabikarnum og einum í FA bikarnum.
Tímabilið fyrir það kom hann við sögu í tveimur leikjum í undankeppni Evrópudeildarinnar.