Fotbolti.net
09.08.26 - 23:23
Hafþór Örn Laursen

Óli Skúla: Pínu handbremsa á okkur sem við þurfum að losa um.

Auglýsing
Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks

Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Breiðablik fékk Val í heimsókn og tapaði 1-3 í 18. umferð Bestu Deildarinnar. Fótbolti.net fékk Óla Skúlason, þjálfara Breiðablik, í viðtal eftir tapleikinn.
Lestu um leikinn: Breiðablik 1 - 3 Valur
„Frammistaðan var alveg ágæt, orkustigið var gott og við mættum vel til leiks. Við þurfum hins vegar að refsa meira og vera meira kliníkal. Mér finnst það koma smá hikst í seinasta þriðjung og við tökum rangar ákvarðanir í kringum teig andstæðinganna og ekki skipta nógu hratt á milli.''

Fram að öðru marki Vals vorum við mjög góðir en þeir eru alltaf hættulegir í skyndisókn og með mikil gæði fram á við og það beit okkur í rassinn í dag.''

Þorleifur Úlfarsson var kynntur sem nýr leikmaður Breiðabliks í gær og spilaði hann sínar fyrstu mínútur með liðinu frá því í desember í fyrra.
Þorleifur aftur í Breiðablik (Staðfest)
TENGT EFNI

Þorleifur aftur í Breiðablik (Staðfest)


„Ég hefði viljað að hann hefði fengið úr meiru að moða. Hann er frábær í teignum. Han náði einni æfingu með okkur í gær fyrir leikinn. Við þekkjum hann mjög vel og hann kemur til að styrkja okkur mjög mikið.''

Sumargluggi Bestu deildarinnar lokar 12. ágúst næstkomandi.

„Vð höfum auga á fullt af leikmönnum en það kæmi mér á óvart ef eitthvað myndi gerast.''

Hvað tekurðu með þér úr þessum leik yfir í næsta?

„Við þurfum að díla betur við lengri bolta, skila okkur niður hraður og pikka upp seinni bolta og klára sóknirnar okkar almennilega. Miðað við þær stöður sem við höfum verið í og erum að hafna þá klárum við sóknirnar of sjaldan. Við þurfum að vera hættulegri og það er eins og það sé pínu handbremsa á okkur sem við þurfum að losa um.''



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.