Fotbolti.net
09.08.26 - 21:58
Sigurjón Árni Torfason

Lárus Orri undrandi: Hvað er Siggi að tala um?

Auglýsing
Lárus Orri var eðlilega sáttur eftir leik!

Lárus Orri var eðlilega sáttur eftir leik!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA tóku á móti Þórsurum í 18 umferð Bestu deildar karla. ÍA voru mun sterkari aðilinn megnið af leiknum og unnu sannfærandi 2-0 í mikilvægum leik. Fótbolti.net voru mættir á Akranes og ræddu við Lárus eftir leik.

„Þau eru bara mjög góð. Ég er mjög ánægður með liðið. Það var mikil vinnsla í okkur og við sköpuðum okkur helling af færum og vorum þéttir og fínir til baka, þannig að bara mjög flottur sigur."

Lárus Orri var að mæta sínum gömlu flugum og uppeldisliði í Þór. Spurning hvort það var extra sætt að vinna Þór?

„Nei, alls ekki. Ég held með Þór í öllu nema tveimur leikjum í sumar."
Siggi Höskulds: Missir ástina á fótbolta að taka þátt í svona leik
TENGT EFNI

Siggi Höskulds: Missir ástina á fótbolta að taka þátt í svona leik

Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Þór
Siggi Höskulds þjálfari Þórs, vildi meina í viðtali við Fótbolta.net að þetta hafi verið eitthvað allt annað en fótbolta leikur sem var spilaður í kvöld. Við spurðum Lárus út í þessi ummæli.

„Hvað er hann að tala um?"

"Af hverju tóku menn þá ekki boltann niður og fóru að spila. Ég gat ekki séð betur en að þeir hafi sparkað fram í hvert einasta skipti, þannig að ég skil ekki hvað hann er að tala um. Ef hann vill spila boltann, þá er velkomið að gera það."

Guðmundur Þórarinsson fór útaf eftir tæpa mínútu vegna meiðsla.

„Gummi fékk aftan í læri. Gummi er búinn að vera að ströggla pínu í vikunni aftan í lærinu. Þetta var svona pínu spurningamerki hvort hann ætti að spila eða ekki en ég held að ég verði að taka sökina á mig. Ég var eiginlega hálfpartinn að plata hann til að spila og er með svona pínu samviskubit yfir því að þetta fór svona hjá honum en vonandi verður hann ekki lengi frá. En það sýnir bara karakterinn hjá Gumma. Gummi var bara mættur fyrir liðið og tilbúinn til þess að taka sénsinn og Gummi er orðinn mikill leiðtogi í hópnum hjá okkur og þetta er bara lýsandi fyrir hann."

Sagði Lárus Orri við blaðamann Fótbolta.net eftir leik.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.