Fotbolti.net
09.09.17 - 08:30
Elvar Geir Magnússon

Orri: Klárt mál að ég kem með köku ef við vinnum

Auglýsing
Orri Sigurður Ómarsson er lykilmaður í vörn Vals.

Orri Sigurður Ómarsson er lykilmaður í vörn Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

„Við pælum ekkert í því,\" sagði varnarmaðurinn Orri Sigurður Ómarsson hjá Val þegar hann var spurður út í það hvernig væri að hafa þetta umtal í gangi þar sem fólk er búið að bóka Val sem Íslandsmeistara.

Valsmenn eru í kjörstöðu á toppi Pepsi-deildarinnar.
„Þetta er ekki komið fyrr en (Staðfest) sviginn er kominn. Við höldum bara áfram. Það hafa svo mörg lið brennt sig á því að halda að þetta sé tryggt og við ætlum ekki að falla í þá gryfju.\"

Það væri samt stórslys að klúðra þessu núna?

„Ég get alveg viðurkennt að það yrði mjög vont. En það er allt hægt. Við höfum séð svona hluti gerast áður. Við höldum bara áfram.\"

Orri segir að reynsluboltinn í þjálfarastólnum, Ólafur Jóhannesson, sé duglegur að hamra á því að titillinn sé ekki í húsi.

„Hann kann þetta alveg og hefur gert þetta áður. Ætli það sé ekki á hverjum degi sem hann lætur okkur vita að þetta sé ekki búið,\" sagði Orri léttur.

Valsmenn eru að fara að mæta Breiðabliki á sunnudagskvöld og býst Orri við erfiðum leik.

„Við erum alltaf í veseni með Breiðablik. Þetta verður spennandi leikur. Það verður fínt að fara aftur á okkar heimavöll og ég er bjartsýnn.\"

Orri er uppalinn í HK og segir að það sé sérstakt fyrir sig að mæta erkifjendunum í Breiðabliki.

„Fyrsta árið mitt hjá Val lofaði ég að koma með köku eftir leik ef við myndum vinna Breiðablik. Við unnum ekki fyrstu tvö árin, ég gleymdi að koma með köku fyrr í sumar en ég kem með köku ef við vinnum á sunnudag. Það er klárt!\"

Orri segir að Breiðablik sé með miklu betri mannskap en taflan segir.

„Það er eiginlega bara ótrúlegt. Mér finnst þetta miklu betra lið en taflan sýnir. Þeir hafa verið óheppnir með þetta þjálfaravesen og það hefur verið erfitt fyrir móralinn í hópnum og allt þetta. Liðið er miklu betra en það hefur verið að sýna,\" sagði Orri.

Sjáðu viðtalið í heild í sjónvarpinu hér að ofan.

laugardagur 9. september
14:00 KR-ÍBV (Alvogenvöllurinn)
16:30 Víkingur Ó.-Fjölnir (Ólafsvíkurvöllur)

sunnudagur 10. september
17:00 ÍA-KA (Norðurálsvöllurinn)
17:00 Víkingur R.-Stjarnan (Víkingsvöllur)
17:00 FH-Grindavík (Kaplakrikavöllur)
19:15 Valur-Breiðablik (Valsvöllur)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.