09.09.18 - 18:26
Ívan Guðjón Baldursson
Bjarka Má sagt upp hjá Tindastóli (Staðfest)

Bjarki á yfir 200 leiki að baki fyrir Tindastól.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll lagði Fjarðabyggð að velli í 2. deild karla í gær og var og ákvað stjórn félagsins að segja upp samningi Bjarka Más Árnasonar eftir leikinn.
Bjarki hefur verið spilandi þjálfari meistaraflokks Tindastóls í sumar og er liðið í næstneðsta sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir.
„Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls ákvað í gær að segja upp samningi Bjarka Más Árnasonar sem þjálfað hefur meistaraflokk karla á þessu tímabili,\" segir Rúnar Rúnarsson, formaður knattspyrnudeildar Tindastóls, fyrir hönd stjórnarinnar.
„Stjórnin vill koma á framfæri þökkum til Bjarka fyrir starf hans fyrir félagið innan vallar og utan. Hann er einn leikjahæsti leikmaður Tindastóls í sögunni og spilaði sinn 200 leik fyrir félagið í sumar.
„Í honum fer drengur góður og óskum við honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hann tekur sér fyrir hendur.\"
Sigurður Halldórsson mun stýra liðinu út tímabilið ásamt Jóni Stefáni Jónssyni og Guðna Þór Einarssyni. Stólarnir eiga tvo leiki eftir, gegn botnliði Hugins og toppbaráttuliði Völsungs.