09.09.18 - 11:30
Ívan Guðjón Baldursson
Maguire framlengir við Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Varnarjaxlinn Harry Maguire er búinn að skrifa undir samning við Leicester sem gildir út tímabilið 2023.
Maguire er 25 ára gamall og talinn meðal bestu miðvarða Englands þessa stundina.
Leicester hafnaði risatilboðum frá Manchester United í sumar og var búist við að Rauðu djöflarnir myndu reyna að krækja aftur í hann í janúar í ljósi vandræða liðsins í vörn. Maguire hefur bundið enda á þær sögusagnir, að minnsta kosti í bili, með undirskriftinni.
Maguire er búinn að vinna sér inn byrjunarliðssæti í enska landsliðinu og er lykilmaður hjá Leicester, sem er sagt hafa hafnað 60 milljón punda boði í hann.
Leicester borgaði 17 milljónir fyrir Maguire síðasta sumar.