09.09.26 - 09:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Kallar eftir breytingum og vill fjölga liðum í Bestu deild kvenna
,,Ég þurfti að athuga þetta tvisvar til að vera viss"

Jóhann Kristinn kallar eftir breytingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framundan eru lokaumferðirnar í Bestu deild kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úrslitaleikur Mjólkurbikars kvenna á laugardag.

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Laugardalsvöllur

Mynd: KSÍ

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar í Bestu deild kvenna, vill fjölga liðum í deildinni. Það eru tíu lið í deildinni en liðin spila öll jafnmarga deildarleiki yfir tímabilið. Nú er búið að skipta deildinni í efri hluta og neðri hluta. Hann ritar í dag pistil á Facebook síðu sína.
Í Bestu deild karla eru tólf lið og þar er skipt í efri sex og neðri sex. Í Bestu deild kvenna eru tíu lið og þar er skipt í efri sex og neðri fjögur. Efri hlutinn spilar því fimm leiki til viðbótar en liðin í neðri hlutanum spila einungis þrjá leiki til viðbótar. Þróttur er í 5. sæti eftir 18 umferðir og verður því í efri hlutanum.
Þróttur er á leið í bikarúrslitaleik á laugardag og í skrifum sínum er Jóhann ósáttur við að lokaumferð Lengjudeildar kvenna sé spiluð ofan í bikarúrslitaleikinn. Lokaumferð Lengjudeildarinnar hefst klukkan 14:00 og bikarúrslitaleikurinn hefst klukkan 16:00.

Færsla Jóhanns Kristins
Bikarúrslitaleikur og Íslandsmót kvenna.
Í gær fór ég með þjálfurunum og liðinu mínu að skoða aðstæður á Laugardalsvelli fyrir bikarúrslitaleikinn á laugardaginn. Það er mikil upplifun fyrir leikmenn að komast í þennan stærsta leik ársins. Einhverjir leikmenn komast oftar en einu sinni á ferlinum í úrslitaleik en yfirleitt er þetta einstök upplifun. Völlurinn er flottur og allir hlakka til að spila þennan leik auðvitað. Það verður hart barist enda andstæðingurinn flott lið Grindavíkur/Njarðvíkur sem eru nýliðar í Bestu deildinni þetta árið og raunar nánast nýtt lið í kvennaboltanum. Frábær árangur hjá þeim þetta árið sem nýliðar að vera búin að tryggja sig áfram í deildinni og komnar í úrslit Mjólkurbikarsins. Flottur og skemmtilegur þjálfari sem er greinilega að gera góða hluti með liðið.
Á sama tíma og við undirbúum okkur fyrir leikinn vakna tvær pælingar sem eru mikið í umræðunni þessa dagana. Þær snúast um kvennafótboltann og hvernig við gerum hlutina hér á landi. Til að afgreiða það strax þá ætla ég ekki að velta fyrir mér styrkleikum á liðum eða deildinni í heild í samanburði við fortíðina. Enda hef ég hvorki greind né mælitæki til að bera saman hluti sem fara fram á mismunandi tímum. Það eina sem ég veit er að Besta deildin í ár er óvenju jöfn og mín upplifun er að það sé erfiðara að halda sér í henni annars vegar og „stinga af“ hins vegar eins og lið hafa stundum gert.
Besta deildin.
Tíu lið, tvöföld umferð og síðan tvískipting. Sex efstu spila innbyrðis og fjögur neðstu um að forða sér frá falli. Nú má segja að reynslutíminn á þessa aðferð síðustu ár sé orðinn nægur til að endurmeta hana. Sex og fjögur? Einhver eru rökin fyrir því að skiptingin er ekki fimm og fimm en ég skil þau ekki. Að eitt lið sitji hjá í hverri umferð eftir tvískiptingu getur varla verið hættulegt. Það er augljóslega ekki stórhættulegt að mikilvægir leikir fari ekki fram á sama tíma ef við miðum við síðustu umferð fyrir skiptingu. Sú umferð fór fram á þrem mismunandi dögum.
Karlamegin eru tólf lið og svo tvískipting í sex efri og sex neðri. Virkar það ekki bara ágætlega? Allt þetta tvískiptingardæmi er niðurstaðan af því að við viljum fjölga leikjum. Sem er bara flott.
Hvað er að stoppa að liðum í efstu deild kvenna sé fjölgað í tólf? Þarf að fara með tillögu á ársþing KSÍ til að það sé gert? Eru einhverjir á móti því í raun og veru? Lengjudeildin er hörkudeild og miðað við þau félög sem eru að berjast um að komast upp þar í ár þá ætti nú ekki að vera mikið mál að gera þetta bara strax. Er eitthvað eðlilegt við að fjögur af tíu liðum í Bestu deildinni spili tveim leikjum færra á tímabili í deild en hin sex? Var ekki einhver nefnd sett á laggirnar til að koma með tillögur að breyttu fyrirkomulagi varðandi þessa skiptingu í deildunum? Er ekki hægt að kippa þessu í liðinn bara núna? Fjölgum liðum, fjölgum leikjum og látum jafnt yfir öll lið ganga. Svo má athuga og endurskoða þetta fyrirkomulag karla-og kvennamegin eftir nokkur ár eins og eðlilegt er. En höfum þetta a.m.k. á einhverju skynsamlegu plani. Það er nefnilega hellings munur á því að spila tveim leikjum færra og í leiðinni að tímabilið sé þrem vikum styttra en hjá efri hlutanum. Fjölgum í deildinni strax!
Bikarúrslitaleikurinn.
Það er auðvitað ekki frábært að leikurinn okkar skuli fara fram daginn eftir úrslitaleikinn karlamegin. En ég hef ekki miklar áhyggjur af því. Starfsmenn Laugardalsvallar eru með allt á hreinu og völlurinn verður í toppstandi á laugardaginn líka. Úrslitaleikurinn karlamegin er á föstudagskvöldi og verður klárlega spennandi. Enda flott tímasetning. Enginn annar leikur í gangi og það verður örugglega frábær mæting og mikil stemning.
Það verður því miður ekki alveg það sama sagt um okkar leik á laugardeginum. Leikurinn hefst kl.16:00 og ég reyndar er alveg viss um að mætingin verður frábær frá báðum liðum og vonandi hlutlausu áhugafólki um fótbolta líka.
En kl.14:00 þann sama dag hefst æsispennandi lokaumferð í Lengjudeild kvenna. Ha!? Ég þurfti að athuga þetta tvisvar til að vera viss. Leikmenn, þjálfarar, aðstandendur, sjálfboðaliðar og stuðningsfólk liðanna í Lengjudeild kvenna eru að spila lokaumferð ofan í úrslitaleik Mjólkurbikarsins!
Á stuttu tímabili hér á landi eru vandamálin ótalmörg og niðurröðun og ákvarðanir mótastjóra og mótanefndar alveg örugglega óteljandi og erfiðar. En það er samt þannig að í þessum tveim málum sem ég nefni hér í allt of löngu máli þá virðist lausnin frekar einföld. Verum bara skynsöm, sýnum leikmönnum, liðum og félögunum virðingu og gerum þeim jafn hátt undir höfði sem eru að leggja líf, sál og allan sinn tíma í fótboltann. Sama hvort um stráka eða stelpur er að ræða.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 18 | +25 | 37 |
| 2 | FH | 18 | +24 | 37 |
| 3 | ÍBV | 18 | -3 | 27 |
| 4 | Stjarnan | 18 | +4 | 26 |
| 5 | Þróttur R. | 18 | -3 | 23 |
| 6 | Grindavík/Njarðvík | 18 | -8 | 22 |
| 7 | Fram | 18 | -15 | 22 |
| 8 | Valur | 18 | -9 | 20 |
| 9 | Víkingur R. | 18 | -11 | 20 |
| 10 | Þór/KA | 18 | -4 | 19 |