09.10.12 - 15:00
Fótbolti.net
Íslenskur slúðurpakki - Númer þrjú

Steven Lennon er orðaður við KR á nýjan leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Rasmus gæti verið á förum frá ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Willum er orðaður við Val.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Milan Stefán Jankovic er að taka við Grindavík.

Það er nóg af kjaftasögum í gangi í íslenska boltanum þessa dagana. Í íslenska slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Slúðurpakki númer eitt (25. september)
Slúðurpakki númer tvö (9. október)

FH: Guðjón Pétur Lýðsson, miðjumaður Vals, er orðaður Íslandsmeistarana. Eyjamaðurinn Þórarinn Ingi Valdimarsson er á óskalista FH en Heimir Guðjónsson hugsar hann sem bakvörð.
Breiðablik: Guðjón Pétur Lýðsson er orðaður við Breiðablik sem og Óskar Pétursson, markvörður Grindvíkinga. Jón Gísli Ström leikmaður ÍR er líka orðaður við Blika.
ÍBV: Rasmus Christiansen er líklega á förum frá ÍBV og óvíst er með Gunnar Már Guðmundsson. Hermann Hreiðarsson ætlar að nýta tengsli sín á Englandi til að styrkja leikmannahópinn.
KR: Steven Lennon, framherji Fram, er orðaður við KR en félagið reyndi að fá hann í sínar raðir í sumar. Atli Sigurjónsson gæti gengið til liðs við sitt gamla félag Þór en að öðru leyti er rólegt yfir kjaftasögunum í Vesturbænum enn sem komið er.
Stjarnan: Búið er að ganga frá ráðningu á Loga Ólafssyni sem þjálfara en félagið hafði talað við Heimi Guðjónsson ásamt því að Atli Eðvaldsson og fleiri sóttu um. Möguleiki er á að liðið fái erlendan markvörð í sínar raðir fyrir næsta tímabil en Ingvar Jónsson gæti verið á förum.
ÍA: Andri Rúnar Bjarnason, framherij BÍ/Bolungarvíkur, er orðaður við ÍA en Skagamenn reyndu einnig að fá hann í sínar raðir í sumar.
Valur: Margir stuðningsmenn Vals eru ósáttir við stöðu félagsins. Willum Þór Þórsson er sterklega orðaður við þjálfarastöðuna hjá Val, mögulega með Guðmund Benediktsson sér við hlið. Talsverðar breytingar gætu orðið á leikmannahópnum. Atli Sveinn Þórarinsson er á förum sem og fleiri leikmenn sem spiluðu minna hlutverk. Dejan Pesic markvörður Völsungs og Joshua Wicks markvörður Þórs eru orðaðir við Hlíðarendaliðið.
Keflavík: Meiri líkur en minni eru á að Guðmundur Steinarsson haldi áfram að leika með Keflvíkingum. Alexander Magnússon, leikmaður Grindvíkinga, er sterklega orðaður við Keflavík. Hægri bakvörðurinn Viktor Smári Hafsteinsson ætlar að leita á önnur mið og óvíst er með Rafn Markús Vilbergsson sem kom frá Njarðvík um mitt sumar en önnur félög hafa sýnt honum áhuga.
Selfoss: Gunnar Guðmundsson er efstur á óskalista Selfyssinga. Auðun Helgason aðstoðarþjálfari Selfyssinga, Jóhannes Harðarson, Kristján Guðmundsson og Freyr Alexandersson hafa einnig verið orðaðir við stöðuna.
Þór: Atli Sigurjónsson er orðaður við sitt gamla félag Þór en hann hefur áhuga á að fara aftur Norður. Edin Beslija, leikmaður Víkings frá Ólafsvík, er einnig orðaður við Þór sem og Jóhann Helgason miðjumaður KA. Þórsarar eiga pening til leikmannakaupa eftir Evrópuævintýrið í sumar en félagið er að leita að leikmönnum erlendis.
Grindavík: Milan Stefán Jankovic er að taka við stjórnartaumunum hjá Grindvíkingum og hann á að reyna að koma liðinu aftur upp. Magnús Björgvinsson er líklega á förum frá Grindavík.
Þróttur: Hjörtur Júlíus Hjartason er orðaður við Þróttara en hann lék með liðinu á sínum tíma.
KA: Líklegt er að Bjarki Baldvinsson og Guðmundur Óli Steingrímsson verði áfram hjá KA þrátt fyrir að hafa verið orðaðir við sitt gamla félag Völsung.
Haukar: Óvíst er með framtíð Sverris Garðarssonar hjá Haukum. Hilmar Geir Eiðsson og Hilmar Rafn Emilsson eru orðaðir við sitt gamla félag og þá eru Bjarni Guðmundsson og Eiríkur Viljar Kúld, leikmenn ÍH, á óskalista Hauka. Viktor Smári Hafsteinsson, leikmaður Keflavíkur, er orðaður við Hauka en hann lék áður með yngri flokkum félagsins.
Víkingur R.: Víkingar eru bjartsýnir á að Sigurður Egill Lárusson, efnilegasti leikmaður 1. deildar, skrifi undir nýjan samning. Halldór Smári Sigurðarson, besti leikmaður Víkings á síðasta tímabili, er hins vegar að hugsa sér til hreyfings. Þá er Bergsveinn Ólafsson leikmaður Fjölnis orðaður við Víking.
Leiknir R.: Allt bendir til þess að Freyr Alexandersson verði næsti þjálfari Leiknis en hann hefur átt í viðræðum við félagið. Halldór Kristinn Halldórsson gæti fylgt honum á heimaslóðir frá Val.
Völsungur: Baldur Ingimar Aðalsteinsson er orðaður við sitt gamla félag Völsung. Þá vonast Húsvíkingar til að fá Guðmund Óla Steingrímsson heim frá KA.
HK: Reynsluboltarnir Hjörtur Júlíus Hjartarson og Helgi Sigurðsson hafa verið orðaðir við HK en Gunnlaugur Jónsson er að taka við þjálfun liðsins.
Dalvík/Reynir: Ragnar Hauksson gæti tekið við þjálfun Dalvíkur/Reynis en Jóhann Hreiðarsson hafnaði tilboði um að taka við liðinu. Hreinn Hringsson og Pétur Heiðar Kristjánsson hafa einnig verið orðaðir við stöðuna.