Fotbolti.net
09.10.12 - 12:51
Elvar Geir Magnússon

Logi Ólafs og Rúnar Páll stýra Stjörnunni (Staðfest)

Logi Ólafsson í Garðabænum í dag.

Logi Ólafsson í Garðabænum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur ráðið Loga Ólafsson sem þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu til næstu tveggja ára. Þetta er staðfest á heimasíðu Silfurskeiðarinnar.
Rúnar Páll Sigmundsson verður Loga til aðstoðar, en hann mun að auki sjá um þjálfun á 2. flokki félagsins og afreksþjálfun yngri leikmanna.

Úr tilkynningu Stjörnunnar:

Ráðning Loga og Rúnars Páls staðfestir þann metnað knattspyrnudeildar Stjörnunnar að koma karlaliði félagsins í fremstu röð.

Í ár vantaði herslumuninn á að koma liðinu í röð þeirra bestu á landinu.

Leikmannahópur félagsins verður lítið breyttur milli ára, en leitast verður við að styrkja hann frekar. Því eru forsendur til að ná betri árangri en áður.

Þá er mikill efniviður í yngri flokkum félagsins, sem hafa verið sigursælir á undanförnum árum.

Logi Ólafsson hefur átt farsælan feril í þjálfun. Eitt af hans fyrstu verkefnum var að þjálfa meistaraflokk Stjörnunnar ásamt Kristni Björnssyni árið 1986. Hann hefur bæði þjálfað kvenna- og karlalandslið Íslands.

Lið undir stjórn Loga hafa tvisvar hampað íslandsmeistaratitli og einu sinni bikartitli í karlaflokki. Logi er uppalinn Stjörnumaður.

Rúnar Páll Sigmundsson hefur þjálfað lið í meistaraflokki karla sl. 5 ár. Hann starfaði hjá HK á árunum 2008 og 2009. Síðan þá hefur hann þjálfað lið Levanger í Noregi með góðum árangri. Rúnar Páll er uppalinn Stjörnumaður.

Knattspyrnudeild Stjörnunnar býður þá Loga og Rúnar Pál velkomna heim og væntir mikils af þeirra framlagi til félagsins á næstunni.

Viðtal við Loga mun birtast á Fótbolta.net síðar í dag
Rúnar Páll Sigmundsson.

Rúnar Páll Sigmundsson.

Canon

Mynd: Vilhjálmur Siggeirsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.