Fotbolti.net
09.10.12 - 18:01
Magnús Már Einarsson

Gunnlaugur Jónsson tekinn við HK (Staðfest)

Frá undirskrift samninga í kvöld.

Frá undirskrift samninga í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari HK en hann skrifaði undir þriggja samning hjá félaginu nú rétt í þessu.
Gunnlaugur tekur við liðinu af Ragnari Gíslasyni en stjórn HK ákvað að endurnýja ekki samning sinn við hann á dögunum.

HK-ingar voru nálægt því að komast upp í 1. deildina á nýliðnu tímabili en liðið var einungis markamun frá því að bara upp.

Gunnlaugur mun nú taka við liðinu en hann hætti með KA á dögunum eftir tveggja ára starf þar.

Á ferli sínum sem þjálfari hefur Gunnlaugur einnig stýrt Selfyssingum og Valsmönnum.

Viðtal við Gunnlaug mun birtast hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.