Fotbolti.net
09.10.26 - 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ótrúlega leiðinlegt að sjá uppeldisfélagið falla

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Valur féll úr Bestu deildinni í sumar.

Valur féll úr Bestu deildinni í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Landsliðskonan Katla Tryggvadóttir segir að það hafi verið ótrúlega leiðinlegt að sjá uppeldisfélagið sitt, Val, falla úr Bestu deildinni á dögunum.

Katla ólst upp á Hlíðarenda og á tvær yngri systur sem eru í kringum meistaraflokks félagsins.
„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“
TENGT EFNI

„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“

„Það var alls ekki gaman. Ég á tvær systur sem eru að spila þarna og þær hafa gefið allt sitt í þetta tímabil," sagði Katla í viðtali við Fótbolta.net aðspurð út í fall Vals.

„Það er bara ótrúlega leiðinlegt að sjá uppeldisfélagið falla en ég hef fulla trú á því að þær spyrni sér upp frá þessu og komi sterkari til baka. Þetta er ákveðin vakning og það þarf bara að takast á við það," bætti hún við.

Þróttur bikarmeistari
Þróttur, annað fyrrum félag Kötlu, varð hins vegar bikarmeistari í sumar og það voru skemmtilegri fréttir.

„Þær eiga það svo sannarlega skilið. Það er svo fallegt að sjá fólkið sem er búið að standa á bak við þetta í mörg ár og vinna ótrúlega hart að þessu," sagði Katla.

„Til hamingju Þróttur."

Katla og liðsfélagar hennar í íslenska landsliðinu mæta Króatíu síðar í dag.
Katla fagnar marki með Þrótti sem varð bikarmeistari í sumar.

Katla fagnar marki með Þrótti sem varð bikarmeistari í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.