Það fer fram einn leikur í dag á langa íslenska undirbúningstímabilinu.
Leikurinn er fyrir norðan í A-deild Kjarnafæðismótins. Magni tekur á móti KA 2 á KA-vellinum.
Leikurinn er í riðli 2. KA 2 hefur spilað tvo leiki og er með þrjú stig eftir sigur gegn Völsungi og tap gegn Þór. Magni hefur spilað einn leik og tapaðist hann gegn Þór, 4-0.
Leikurinn hefst klukkan 20:30 og verður eins og fyrr segir á gervigrasinu hjá KA.
miðvikudagur 10. febrúar
Kjarnafæðismótið - A-deild, riðill 2
20:30 Magni-KA 2 (KA-völlur)
Athugasemdir