Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, hefur dregið sig úr landsliðshóp Íslands sem mætir Mexíkó í vináttuleik í lok mánaðar vegna meiðsla.
Þetta staðfestir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í samtali við Fótbolta.net. Aron er að snúa til baka eftir krossbandaslit en fékk bakslag og meiddist í kálfa.
Nafni hans Aron Sigurðarson, leikmaður KR, þurfti jafnframt að draga sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Hallgrímur Mar Steingrímsson kom inn í hópinn í hans stað.

„Hann fékk smá bakslag, ekkert alvarlegt. Það þarf að passa vel upp á hann á komandi vikum. Við sáum það að besta ákvörðunin væri að hann myndi vera á Íslandi og sinna sínum málum.
Það er vissulega er flott að vera valinn, hann er búinn leggja hart að því að koma til baka eftir erfið meiðsli. Hann hefur litið mjög vel út á undirbúningstímabilinu og þróunin hefur verið akkúrat þannig eins og við vonuðumst eftir.“
„Þetta er smá hnjask í kálfanum. Þetta er alveg sem við mátti búast eftir svona meiðsli; Að það komi smá bakslag í endurkomuferlið. En þetta er ekki alvarlegt. Hann ætti í besta falli að vera klár í einhverjar mínútur gegn KR, við þurfum að sjá til hvernig endurhæfingin gengur,“ segir Sölvi en Víkingur mætir KR þann 19. febrúar.
Miðjumenn sem gætu komið í stað Arons í hópnum eru meðal annars þeir Guðmundur Baldvin Nökkvason, Gísli Eyjólfsson og Valgeir Valgeirsson, sem er í grunninn miðjumaður en hefur að mestu leyti spilað hægri bakvörð síðustu ár.
Athugasemdir