Stuðningsmenn Tottenham hljóta að velta fyrir sér 'hvenær er nóg komið?' Hörmulegt gengi þeirra manna heldur áfram en í kvöld tapaði Spurs á heimavelli gegn Newcastle.
Newcastle voru sterkari í fyrri hálfleiknum og tóku forystuna undir lok hans þegar varnarmaðurinn Malick Thiaw skoraði.
Newcastle voru sterkari í fyrri hálfleiknum og tóku forystuna undir lok hans þegar varnarmaðurinn Malick Thiaw skoraði.
Archie Gray jafnaði fyrir Spurs eftir rúmlega klukkutíma leik en staðan var ekki lengi jöfn því Jacob Ramsey kom Newcastle aftur yfir með snyrtilegri afgreiðslu fjórum mínútum síðar.
Fleiri urðu mörkin ekki og sigur Newcastle staðreynd. Newcastle hafði tapað þremur leikjum í röð fyrir leikinn í kvöld en þeir komust aftur á sigurbraut á heimavelli Spurs.
Tottenham situr í 16. sæti deildarinnar og er aðeins þremur stigum frá fallsæti ef West Ham vinnur Manchester United í leik sem er núna í gangi. Það er alveg óhætt að segja það að Tottenham getur fallið, þeir eru alls ekki nógu góðir til þess. Thomas Frank er enn í starfi en hversu mikið lengur?
Chelsea missti niður tveggja marka forystu
Í London gerði Chelsea 2-2 jafntefli við Leeds eftir að hafa komist 2-0 yfir. Joao Pedro og Cole Palmer, sem hafa verið að spila mjög vel að undanförnu, komu Chelsea í 2-0 en Leeds, án Dominic Calvert-Lewin, kom til baka og jafnaði með mörkum frá Lukas Nmecha og Noah Okafor.
Cole Palmer fékk stórkostlegt færi til að gera sigurmark í lokin en hann klikkaði á einhvern ótrúlegan hátt. Chelsea er sem stendur í fjórða sæti en það gæti líka breyst síðar í kvöld. Leeds situr í 15. sæti deildarinnar.
Þá vann Bournemouth 1-2 útisigur á Everton eftir að hafa lent undir. Brasilíska ungstirnið Rayan skoraði í öðrum leiknum í röð með Bournemouth og spurning hvort stjarna sé að fæðast þar.
Chelsea 2 - 2 Leeds
1-0 Joao Pedro ('24 )
2-0 Cole Palmer ('58 , víti)
2-1 Lukas Nmecha ('67 , víti)
2-2 Noah Okafor ('73 )
Tottenham 1 - 2 Newcastle
0-1 Malick Thiaw ('45 )
1-1 Archie Gray ('64 )
1-2 Jacob Ramsey ('68 )
Everton 1 - 2 Bournemouth
1-0 Iliman Ndiaye ('42 , víti)
1-1 Rayan ('61 )
1-2 Amine Adli ('64 )
Rautt spjald: Jake O'Brien, Everton ('69)
Athugasemdir



