Tveir leikir eru í gangi í íslenska boltanum í dag en KR mætir Leikni R. í A-deildinni og þá spilar kvennalandsliðið síðasta leik sinn í Pínatar-bikarnum á Spáni.
KR er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki og þremur stigum á eftir Breiðablik. Leiknir R. er í fjórða sæti með 3 stig.
Íslenska kvennalandsliðið spilar við Úkraínu í lokaleik liðanna í Pínatar-bikarnum. Ísland hefur unnið einn og tapað einum.
Leikir dagsins:
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
19:00 KR-Leiknir R. (KR-völlur)
Pinatar Cup 2020 - A-landslið kvenna
14:00 Úkraína-Ísland (Pinatar Arena)
19:30 Skotland-Norður-Írland (Pinatar Arena)
Athugasemdir