Sérstakur aukaþáttur vegna stórfrétta dagsins af málum Chelsea. Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar.
Chelsea hefur notið mikillar velgengni í eignartíð Abramovich en nú eru framundan nýir og breyttir tímar.
Elvar Geir Magnússon og Sæbjörn Steinke fara yfir tíðindin og með þeim er stuðningsmaður Chelsea, Ágúst Reynir Þorsteinsson.

Ágúst er eigandi veitingastaðarins Bombay Bazaar í Ármúla. Uppáhalds réttur Fótbolta.net þar er Chicken 65. Mælum með!
Hlustaðu í spilaranum hér að ofan, í gegnum Podcast forrit eða á Spotify.
Allt um mál Chelsea og Abramovich
09:44 Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar - Má ekki selja Chelsea
10:57 Ráðherra: Gætum þess að Chelsea hljóti ekki óþarfa skaða
11:49 Skelfilegar afleiðingar fyrir Chelsea - Verður ekki félagið sem við höfum þekkt
12:22 Brentford óskar eftir svörum
13:02 Stjórn Chelsea með neyðarfund og styrktaraðilar skoða sína stöðu
14:05 Ríkisstjórnin opin fyrir því að Chelsea verði selt
16:00 Pep vorkennir Tuchel
16:53 Three hættir að auglýsa framan á treyjum Chelsea
Athugasemdir