Pep Guardiola, stjóri Manchester City, segist vorkenna kollega sínum, Thomas Tuchel, vegna óvissuástandsins sem hefur skapast hjá Chelsea í kjölfar þess að breska ríkisstjórnin frysti eigur Roman Abramovich.
„Þetta er erfið staða fyrir Thomas Tuchel og leikmenn. Þetta er óþægilegt," segir Guardiola sem vildi ekki segja sína skoðun á stöðu mála hjá Chelsea, hann hefði einfaldlega ekki nægar upplýsingar til að geta gert það.
„Þetta er erfið staða fyrir Thomas Tuchel og leikmenn. Þetta er óþægilegt," segir Guardiola sem vildi ekki segja sína skoðun á stöðu mála hjá Chelsea, hann hefði einfaldlega ekki nægar upplýsingar til að geta gert það.
Chelsea mætir Norwich í kvöld og ljóst er að Tuchel mun fá spurningar sem ekki tengjast fótboltanum.
Guardiola þekkir þetta sjálfur en hann hefur verið spurður út í fjárhagsreglur, sjálfstæðisbaráttu Katalóna, heimsfaraldurinn, stríðið í Úkraínu og ýmislegt fleira.
„Í gegnum Covid-19 þá vorum við beðnir um að tjá okkur eins og við værum læknar. Við erum andlit félaga okkar, við ræðum við fjölmiðla á þriggja daga fresti og menn spyrja að því sem þeir vilja. Við erum spurðir álits á málefnum sem við þekkjum ekki og við höfum ekki tíma til að kynna okkur," segir Guardiola.
Allt um mál Chelsea og Abramovich
09:44 Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar - Má ekki selja Chelsea
10:57 Ráðherra: Gætum þess að Chelsea hljóti ekki óþarfa skaða
11:49 Skelfilegar afleiðingar fyrir Chelsea - Verður ekki félagið sem við höfum þekkt
12:22 Brentford óskar eftir svörum
13:02 Stjórn Chelsea með neyðarfund og styrktaraðilar skoða sína stöðu
14:05 Ríkisstjórnin opin fyrir því að Chelsea verði selt
Athugasemdir


