Delap, Mainoo, Bastoni, Atubolu, Vicario, Dewsbury-Hall, Guimaraes og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 10. mars 2022 16:52
Elvar Geir Magnússon
Three hættir að auglýsa framan á treyjum Chelsea
Samskiptafyrirtækið Three hefur ákveðið að hætta auglýsingum framan á treyjum Chelsea þar til annað verður ákveðið. Þá hefur fyrirtækið látið fjarlægja auglýsingar á Stamford Bridge.

„Við gerum okkur grein fyrir því að þetta hefur áhrif á marga stuðningsmenn Chelsea sem hafa fylgt sínu liði af ástríðu. Í ljósi aðstæðna og ákvörðun ríkisstjórnarinnar um refsiaðgerðir teljum við hinsvegar rétt að draga okkur í hlé," segir í tilkynningu Three sem verið hefur aðalstyrktaraðili Chelsea.

Það má því búast við því að Chelsea leiki án auglýsinga framan á treyjum sínum í kvöld þegar liðið leikur gegn Norwich í ensku úrvalsdeildinni. Three segist reyndar sýna því skilning ef ekki verður hægt að fjarlægja auglýsingarnar fyrir leikinn í kvöld.

Rússneski eigandinn Roman Abramovich var beittur refsiaðgerðum af breskum stjórnvöldum og eignir hans frystar. Þetta hefur verið gert við fleiri rússneska auðkýfinga sem taldir eru hafa tengingu við Vladimír Pútín, forseta Rússlands.

Allt um mál Chelsea og Abramovich
09:44 Abramovich á refsilista Bretlands og eignir frystar - Má ekki selja Chelsea
10:57 Ráðherra: Gætum þess að Chelsea hljóti ekki óþarfa skaða
11:49 Skelfilegar afleiðingar fyrir Chelsea - Verður ekki félagið sem við höfum þekkt
12:22 Brentford óskar eftir svörum
13:02 Stjórn Chelsea með neyðarfund og styrktaraðilar skoða sína stöðu
14:05 Ríkisstjórnin opin fyrir því að Chelsea verði selt
16:00 Pep vorkennir Tuchel
Athugasemdir
banner