Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 22:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Schmeichel: Hann drap ferilinn hans
Peter Schmeichel.
Peter Schmeichel.
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Antonin Kinsky.
Antonin Kinsky.
Mynd: EPA
Peter Schmeichel, einn besti markvörður fótboltasögunnar, gagnrýndi Igor Tudor, stjóra Tottenham, harðlega eftir leiki kvöldsins í Meistaradeildinni.

Tottenham tapaði 5-2 gegn Atletico Madrid á Spáni.

Antonin Kinsky fékk tækifæri í marki Spurs en hann var tekinn af velli á 17. mínútu eftir að hafa gert tvö slæm mistök.

Kinsky fór beint inn í klefa og greinilega miklar tilfinningar í gangi hjá honum. Nokkrir leikmenn Spurs eltu Kinsky til að reyna að hughreysta hann.

Schmeichel gagnrýndi Tudor mjög fyrir þá ákvörðun að taka Kinsky af velli.

„Þetta verður augnablik sem allir í fótbolta munu muna eftir þegar þeir sjá eða heyra nafn Kinsky," sagði Schmeichel um augnablikið þegar Tékkanum var kippt af velli. Ekki gerist það á hverjum degi að markverði sé skipt út af vegna frammistöðu.

„Þú verður að halda honum inn á til hálfleiks hið minnsta. Hann drap ferilinn hans. Ég finn mjög til með honum."

Paul Robinson, fyrrum markvörður Tottenham, gagnrýndi Tudor einnig. „Þetta er sjálfselska hjá stjóranum. Hann er að reyna að bjarga eigin skinni og er ekkert að hugsa um leikmanninn sinn," sagði Robinson.
Athugasemdir
banner
banner