Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Vill fá Kristófer en blæs á kjaftasögur
Kristófer Ingi Kristinsson.
Kristófer Ingi Kristinsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Adam Ægir Pálsson.
Adam Ægir Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur reynt að kaupa sóknarmanninn Kristófer Inga Kristinsson frá Breiðabliki að undanförnu.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, var spurður út í Kristófer eftir tap gegn Þór í Lengjubikarnum í kvöld.

Vilt þú fá Kristófer?

„Að sjálfsögðu. Annars værum við ekki að reyna við hann," sagði Hermann. „Hann er með samning hjá öðru félagi og það er ekki alveg í okkar höndum. Það eru einhverjar samningaviðræður sem ég er ekki í. Það fer einhvern veginn."

„Við erum með augun opin og það er vonandi að eitthvað komi í gegn."

Það kom fram í Dr Football hlaðvarpinu á dögunum að Valur hefði boðið Adam Ægi Pálsson í skiptum fyrir Kristófer. Hemmi var einnig spurður út í það.

„Það er bara kjaftæði því hann hefur verið frábær í þeim leikjum sem hann hefur spilað. Hann er hrikalega öflugur fótboltamaður og er ekki að fara neitt."

„Þetta er bara bull."
Athugasemdir
banner
banner