Leao og Bowen orðaðir við Man Utd - Alisson til Juventus
Rúnar Páll: Höfum verið betra liðið í flestum þessum leikjum
Daniel Badu: Misstum haus og þeir refsuðu
Nenad: Mjög kærkomið
Ósáttur Davíð Smári: Held að það sé best að halda kjafti
Heimir Guðjóns ánægður: Frábært veður, frábær völlur og frábært vallarstæði
Gunnar Heiðar: Við urðum bara pinkulitlir í okkur
Aðstoðarþjálfari ÍR: Fannst við betra liðið allan tímann
Sterkastur í 8. umferð - Refsuðum þeim út um allan völl
Venni: Þetta var hræðileg árás á Aron Snæ
Maggi: Vonandi fáum við fljótlega stúku með þaki
Freyr Sig: Það er ljúft að vera í Fram í dag
Sölvi Geir mjög ánægður: Hefðum auðveldlega getað unnið stærra
Rúnar Kristins: Erfitt fyrir mig að vera með hann á bekknum
Ármann Ingi bjóst við láni en hefur sýnt að hann geti spilað í Bestu
Jökull hefur áhyggjur af stöðunni: Það væri skrýtið að gera það ekki
„Erfitt að fá á sig þrjú mörk og vinna en við gerðum það samt“
Jói Kalli: Rauða spjaldið gjörbreytir leiknum
Hólmar Örn: Hefur verið mikið vopn hjá okkur
Óskar segir liðið vera með svarta beltið í að tapa - „Eigum við að hýða okkur með belti?“
Oliver súr: Fyrsti leikurinn þar sem mér líður mjög vel
   þri 10. mars 2026 19:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hemmi Hreiðars: Ekki nálægt því að vera þannig
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Valsmenn töpuðu 5-1 gegn Þór.
Valsmenn töpuðu 5-1 gegn Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara heilan helling," sagði Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, spurður að því hvað hann tæki úr 5-1 tapinu gegn Þór í Lengjubikarnum í kvöld.

Valur tefldi fram mjög ungu liði í leiknum í kvöld sem var hreinn úrslitaleikur um að komast í undanúrslit Lengjubikarsins.

Valur er ekki fyrsta liðið sem hvílir lykilmenn í leik í Boganum. Hemmi sagði þó þá staðreynd að leikurinn væri í Boganum ekki hafa haft áhrif á liðsvalið.

„Nei, þetta er bara geggjaður völlur. Þetta var skipulagið hjá okkur, hvernig við vildum haga okkur síðustu vikurnar (fyrir mót). Það hefur verið svolítið mikið um að menn séu ekki klárir. Það styttist í mót og við ætlum að þétta raðirnar."

„Í fyrri hálfleik sýndu margir að það býr hellingur í þeim," sagði Hemmi.

Hann sagði að ef leikurinn í kvöld hefði verið eftir tíu daga, þá hefði liðsvalið verið öðruvísi. Hann telur þetta ekki vanvirðingu við Lengjubikarinn.

„Þetta er það ekki, ekki nálægt því að vera þannig. Menn geta komið á æfingasvæðið og séð hvernig staðan er, hvað menn hafa æft mikið. Menn mega hugsa hvað sem þeir vilja en við vitum alveg hvernig staðan er og hvað er best fyrir liðið. Við erum að gera okkur klára fyrir Íslandsmót og þetta er hluti af því," sagði Hemmi og talaði um það í viðtalinu að margir hefðu æft lítið og það væri best fyrir þá að sjá andlitið á hvor öðrum á æfingasvæðinu.

Allt viðtalið er í spilaranum hér að ofan.
Slapp