Anton Logi Lúðvíksson, leikmaður Breiðabliks, er að snúa aftur eftir að hafa verið frá síðustu mánuði. Hann er byrjaður að æfa en óvíst er hvenær hann mun spila sinn fyrsta leik. Hann er á varamannabekknum gegn Víkingi en sá leikur hefst klukkan 19:15.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 0 - 1 Breiðablik
Miðjumaðurinn hefur lengi verið að glíma við meiðsli í öxl og var ákveðið að koma honum í aðgerð í lok síðasta árs.
Hann hefur því verið frá á undirbúningstímabilinu en Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, kom með mjög jákvæðar fréttir af honum þegar Fótbolti.net ræddi við hann í höfuðstöðvum KSÍ er dregið var í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins í gær.
„Hún er bara nokkuð góð. Hann er að komast á skrið, farinn að æfa aðeins með okkur, en aðeins í hann svona 'fitness' lega séð en frábært að vera búinn að fá hann aftur út á völl,“ sagði Ólafur Ingi um Anton.
Er hægt að búast við honum í maí?
„Það verður aðeins að koma í ljós. Það er of snemmt að segja nákvæmlega hvenær, en miðað við síðustu vikur hafa verið er framþróunin góð og vonumst eftir honum sem fyrst. Við þurfum bara að koma honum inn jafnt og þétt og passa að ýta honum ekki of hratt inn í þetta þá geta komið upp önnur meiðsli og annað þannig við þurfum bara að 'trappa' hann upp,“ sagði Ólafur Ingi í lokin.

