Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 10. apríl 2026 12:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Höskuldur hungraður: Ætlum að svara fyrir síðasta tímabil
'Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil.'
'Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég er minn helsti gagnrýnandi'
'Ég er minn helsti gagnrýnandi'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
'Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur'
'Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Besti leikmaður Íslandsmótsins 2024.
Besti leikmaður Íslandsmótsins 2024.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Spáin kemur ekkert á óvart, Víkingur er Íslandsmeistari, eru með feikisterkt lið og hafa ef eitthvað er bara styrkt liðið. Hverju ég trúi svo raunverulega, það er annað. Ég er lítið að spá í þessari spá. Ég hlakka til að byrja á föstudaginn," segir Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, við Fótbolta.net.

Blikum er spáð 2. sæti hér á Fótbolti.net en Höskuldur hefur trú á því að liðið getur gert betur.

Blikar verða ekki í Evrópu í sumar og var Höskuldur spurður hvort það muni hjálpa Kópavogsliðinu.

„Það verður að koma í ljós. Maður er bara hundfúll að vera ekki í Evrópu. Allavega framan af, áður en eitthvað geðveikis-álag byrjar í (deildar)keppni og þess háttar, þá er Evrópa bara krydd og bensín - bara jákvæð. Ég vil ekki vera með yfirlýsingar, og trúi því ekki að hvíldin (hjálpi eitthvað framan af). Ég held það muni gagnast okkur að nýta þetta sem smá heift; að svara fyrir okkur og að þetta (að vera ekki í Evrópu) skuli ekki gerast aftur."

Höskuldur var besti leikmaður Íslandsmótsins 2024 en umræðan um hann á síðasta tímabili var sú að hann væri ekki að spila jafnvel og árið á undan. Er hann sammála því?

„Ég get alveg tekið undir það. Ég er minn helsti gagnrýnandi og það er kannski helsta ástæðan fyrir því að maður hefur spilað á háu getustigi í langan tíma og af miklum stöðugleika. Tölfræði og þannig var ekki ólík því og hafði verið, en oft er þetta 'eye-testið' og þetta huglæga; andinn í efninu. Það var kannski ekki alveg jafnmikið til staðar og ég er svo sem ekki með einhverja skýringu á því (af hverju). Eina sem ég veit að ég er mjög hungraður, mjög drifinn áfram af því að við sem lið svörum fyrir síðasta tímabil. Mér líður vel og er peppaður fyrir hópnum og liðinu fyrir þetta tímabil."

Blikar mæta Víkingi á Víkingsvelli í opnunarleik Bestu deildarinnar í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Hvernig verður að mæta þangað?

„Það verður vonandi gott veður, troðfull stúka og held þetta sé frábær leikur fyrir leikmenn, stuðningsmenn beggja liða og ekki síður deildina; vonandi alvöru 'PR stunt' til að sparka þessu í gang með svona stórum leik. Það er mikil tilhlökkun."

„Við náum í góð úrslit með því að hitta á okkar besta dag, allir sem einn. Það hefur verið það sem skilur að þegar kemur að úrslitunum í þessum leikjum. Þetta hafa verið mjög skemmtilegir leikir, mikil barátta, góður fótbolti og mikið af mörkum. Við ætlum að mæta hugrakkir, eins og við höfum oft mætt gegn Víkingi, með kassann úti og keyrum á þetta,"
segir Höskuldur.

1. umferðin í Bestu
föstudagur 10. apríl
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)

sunnudagur 12. apríl
13:00 ÍBV-FH (Hásteinsvöllur)
17:00 KR-Keflavík (Meistaravellir)
17:00 Valur-Þór (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:00 KA-Stjarnan (Greifavöllurinn)
19:30 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
Slapp
banner