Fréttir bárust í gær að Gylfi Þór Sigurðsson myndi ekki spila með Víkingum gegn Breiðabliki í opnunarumferð Bestu deildarinnar, en annað kom á daginn.
Lestu um leikinn: Víkingur R. 1 - 1 Breiðablik
Greint var frá því í hlaðvarpsþættinum Dr. Football að Gylfi væri ekki leikfær og myndi því ekki spila gegn Blikum.
Í dag staðfesti Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í samtali við Vísi að Gylfi væri leikfær og klár í að byrja leikinn.
Byrjunarliðið var staðfest klukkutíma fyrir leik og var Gylfi á sinum stað í liðinu, en Gylfi segir sjálfur að það hafi verið tvísýnt hvort hann myndi spila leikinn.
„Já, eiginlega fram að gærdeginum leit ekkert út fyrir að ég myndi spila og líka bara fór það líka bara eftir því hvernig ég myndi vakna eftir æfinguna. Strákarnir sýndu mér líka frétt að ég væri ekki að fara spila, í gær, þegar ég var að fara spila,“ sagði Gylfi í kvöld.
Hann spáði ekkert meira í þessu og setti alla einbeitingu í að koma sér í stand.
„Nei, ég persónulega var ekki mikið meðvitaður um þetta. Ég hafði nóg að gera að koma mér í stand til að spila leikinn.“ '
Gylfi kom nokkuð vel undan leiknum. Hann skoraði eina mark Víkings er hann nýtti sér mistök Antons Ara Einarssonar og lyfti boltanum yfir markvörðinn sem stóð framarlega og tryggði Víkingum stig.
„Þreyttur og smá aumur en fínt að líkaminn hélt,“ sagði Gylfi.


