Tíu sem þú verður að fylgjast með í Bestu deildinni í sumar

Sigurður Breki Kárason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki Kárason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er mikil eftirvænting í loftinu og sjaldan verið eins mikil spenna fyrir fótboltasumri hér á Íslandi.

„Myndi borga mig inn 100-200 þúsund til að horfa á hann spila"
Hér fyrir neðan má skoða þennan lista en reglan er sú að leikmennirnir á honum mega ekki vera orðnir tvítugir; þeir eru sem sagt allir á táningsaldri.

Alexander Rafn Pálmason (KR) - Fæddur 2010. Mjög efnilegur leikmaður sem fer til Nordsjælland í Danmörku um mitt sumar. Hann mun fá hlutverk í liði KR áður en hann fer út.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Róbert Elís Hlynsson (ÍBV) - Fæddur 2007. Miðjumaður sem sló í gegn með ÍR í Lengjudeildinni fyrir tveimur árum. Fer til Vestmannaeyja á láni frá KR og mun vonandi láta ljós sitt skína þar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki Kárason (KR) - Fæddur 2009. Hefur vakið mikla athygli á undirbúningstímabilinu með KR. Mjög efnilegur leikmaður sem gæti sprungið út í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Nói Viðarsson (FH) - Fæddur 2007. Miðjumaður sem gerði tveggja ára samning við FH núna stuttu fyrir mót eftir að hafa leikið í Belgíu þar áður. Faðir hans er Arnar Þór Viðarsson, fyrrum landsliðsþjálfari.

Mynd: FH

Róbert Hugi Sævarsson (FH) - Fæddur 2010. Miðjumaður sem er mjög þroskaður leikmaður miðað við aldur. Heimir Guðjónsson endurfæddur segja sumir.

Mynd: FH

Gabríel Snær Gunnarsson (ÍA) Fæddur 2008. Á ekki langt að sækja hæfileikana þar sem faðir hans er Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Hefur verið iðinn við kolann á undirbúningstímabilinu en mun fara út um mitt sumar til Elfsborg í Svíþjóð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Helgi Aronsson (Keflavík) - Fæddur 2007. Ekki margir efnilegir miðverðir að koma upp en hann er einn af þeim. Er á láni frá Víkingum og fær tækifæri til að láta ljós sitt skína í Keflavík í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorri Ingólfsson (Víkingur R.) - Fæddur 2009. Það er erfitt að brjóta sér leið inn í lið Víkinga en ekki láta það koma ykkur á óvart ef Þorri fær sénsa. Hefur staðið sig mjög vel þegar hann hefur fengið tækifæri í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Freyr Halldórsson (Þór) - Fæddur 2008. Sló í gegn í Lengjudeildinni í fyrra og spilar í Bestu deildinni í sumar þrátt fyrir mikinn áhuga erlendis frá.

Mynd: Ármann Hinrik

Jónatan Guðni Arnarsson (Breiðablik) - Fæddur árið 2007. Hægindastóllinn var dreginn fram þegar Jónatan Guðni skrifaði undir í Kópavogi. Kemur eftir að hafa fengið tækifæri með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega framherja í Bestu deildinni.

Mynd: Breiðablik




