Fotbolti.net
10.05.21 - 08:55
Victor Pálsson
Ítalska deildin

Pirlo: Ég mun ekki stíga til hliðar

Pirlo: Ég mun ekki stíga til hliðar
Canon

Mynd: EPA

Andrea Pirlo ætlar ekki að segja af sér sem knattspyrnustjóri Juventus þrátt fyrir afar brösugt gengi.
Pirlo greinir sjálfur frá þessu en Juventus tapaði 3-0 gegn AC Milan heima í gær og er ekki í Meistaradeildarsæti.

Margir stuðningsmenn Juventus vilja sjá hann stíga til hliðar og þá sérstaklega ef liðinu mistekst að komast í deild þeirra bestu.

Það er þó ekki á dagskrá hjá Pirlo að hætta og ætlar að klára tímabilið með liðinu.

„Segja af mér? Nei ég mun ekki stíga til hliðar. Ég tók metnaðarfullur við þessu starfi þrátt fyrir suma erfiðleika," sagði Pirlo.

„Það eru enn þrír leikir eftir svo ég mun halda áfram svo lengi sem ég fæ að gera það."

Einhverjir ítalskir fjölmiðlar telja að starf Pirlo hangi á bláþræði og að aðstoðarmaður hans, Igor Tudor, gæti tekið við stjórnartaumunum út tímabilið.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese11-126
20Venezia11-144
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.