Fotbolti.net
10.05.26 - 15:38
Brynjar Ingi Erluson

„Held ég þurfi minni skó“

Ollie Watkins skoraði tólfta deildarmarkið sitt gegn Burnley

Ollie Watkins skoraði tólfta deildarmarkið sitt gegn Burnley

Canon

Mynd: EPA

Ollie Watkins, framherji Aston Villa, var nokkuð sáttur með 2-2 jafnteflið gegn Burnley í ensku úrvalsdeildinni í dag, en hann var þó örlítið vonsvikinn með að hafa ekki landað sigrinum eftir að hafa snúið taflinu við.
England: Aston Villa og Everton töpuðu stigum - Anderson kom Forest til bjargar
TENGT EFNI

England: Aston Villa og Everton töpuðu stigum - Anderson kom Forest til bjargar

Villa lenti marki undir snemma leiks, en skoraði tvö mörk sitt hvoru megin við hálfleikinn.

Zian Flemming jafnaði fyrir Burnley og lauk leiknum með 2-2 jafntefli sem gerir ekki mikið fyrir Villa í baráttunni um 4. sæti deildarinnar.

„Þetta var ótrúlega erfiður leikur. Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hafa þeir verið ótrúlega sterkir síðustu vikurnar. Man City vann aðeins með einu marki gegn engu hér. Þetta var dýrmætt stig eftir að hafa lent undir, en samt vonbrigði að hafa snúið taflinu við og kastað því frá okkur.“

„Þetta er gott stig. Ef þú getur ekki unnið þá máttu alla vega ekki tapa leiknum. Við mætum næst Liverpool á Villa Park og þar tekst okkur alltaf að gera þeim erfitt fyrir.“

„Við fögnuðum stórkostlegum úrslitum í Evrópu fyrir nokkrum dögum. Það var erfitt að gera það sama 48 tímum eftir að hafa lagt alla þessa orku og framlag í leikinn,“
sagði Watkins.

Watkins skoraði seinna mark Villa í leiknum í dag með laglegri afgreiðslu, en þá var eitt mark tekið af honum í fyrri hálfleiknum. Hann gæti þurft að kaupa sér minni skó enda munaði aðeins nokkrum sentimetrum á að Watkins væri réttstæður.

„Þetta var langur bolti fram sem lenti á öxlinni á mér. Dómarinn sagði þá skoða markið í gegnum VAR, en það var dæmt gott og gilt. EItt mark var tekið af mér í fyrri hálfleiknum sem var alger synd. Ég held að ég þurfi minni skó,“ sagði Watkins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.