Fotbolti.net
10.05.26 - 14:02
Brynjar Ingi Erluson
Í samstarfi við styrktaraðila

Ítalía: Sögulegt afrek hjá Fabregas og Como

Ítalía: Sögulegt afrek hjá Fabregas og Como
Canon

Mynd: EPA

Verona 0 - 1 Como
0-1 Anastasios Douvikas ('71 )
Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como munu spila í Evrópukeppni á næsta ári.

Como vann Hellas Verona með einu marki gegn engu í dag þökk sé marki frá Grikkjanum Anastasios Douvikas tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Markið tryggði Sambandsdeildarsæti fyrir næstu leiktíð, en Como ætlar sér stærri hluti. Liðið er í 5. sæti með 65 stig, tveimur stigum frá Milan sem er í Meistaradeildarsæti þegar tvær umferðir eru eftir.

Sambandsdeildarsætið er samt afar þýðingarmikið fyrir Como sem mun spila í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu félagsins á næsta tímabili.

Hvort Fabregas stýri liðinu á þessu sögulega tímabili kemur í ljós í sumar, en hann hefur verið sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá Chelsea á Englandi.

Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.