Fotbolti.net
29.06.26 - 21:57
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu Havertz jafna metin gegn Paragvæ

Þetta var þriðja mark Havertz á mótinu

Þetta var þriðja mark Havertz á mótinu

Canon

Mynd: EPA

Þjóðverjar eru búnir að jafna metin gegn Paragvæum í 32-liða úrslitum heimsmeistaramótsins en það var Arsenal-maðurinn Kai Havertz sem gerði það með skalla.
Þjóðverjar litu ekkert sérstaklega vel út í fyrri hálfleiknum og það voru Paragvæar sem fóru með eins marks forystu inn í leikhlé eftir laglegt skallamark Julio Enciso á 42. mínútu.

Þegar um níu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik jafnaði Havertz metin.

Florian Wirtz átti þá laglega fyrirgjöf inn á teiginn á Havertz, sem stýrði boltanum með höfðinu í fjærhornið. Orlando Gill, markvörður Paragvæ, las stöðuna illa og hljóp á eftir boltanum sem fór alveg út við stöng.

Þriðja mark Havertz á mótinu og Þjóðverjar komnir aftur inn í leikinn.

Sjáðu markið hjá Havertz hér
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.