Vilja fá metfé fyrir Rogers

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Aston Villa hefur sent Arsenal skýr skilaboð varðandi enska landsliðsmanninn Morgan Rogers. Þetta kemur fram í Telegraph.
Rogers er ofarlega á óskalista Arsenal og Chelsea hefur einnig áhuga á honum.
Arsenal er sagt undirbúa tilboð í leikmanninn en Aston Villa verðmetur hann á 130 milljónir punda.
Ástæðan fyrir því er meðal annars sú að Middlesbrough fær 20 prósent af næstu sölu leikmannsins, en Rogers gekk í raðir Villa fyrir 15 milljónir punda árið 2024.
Villa hefur því gert Arsenal ljóst að félagið þurfi að slá félagaskiptamet ensku úrvalsdeildarinnar ætli það sér að næla í Rogers. Ef Arsenal gengist við þeirri upphæð yrði hann dýrasti leikmaður í sögu deildarinnar.
Alexander Isak er nú dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, en Liverpool keypti hann frá Newcastle United fyrir 125 milljónir punda á síðasta ári.
Rogers, sem er 23 ára gamall, kom að 26 mörkum í öllum keppnum með Villa á síðustu leiktíð. Hann er staddur á heimsmeistaramótinu með Englendingum og hefur komið við sögu í öllum þremur leikjum þeirra.