Real Madrid ræðir við Mourinho - Chelsea og Newcastle vilja Nunez - Joao Gomes til Atlético?
   sun 10. maí 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Þorleifur hetjan í fyrsta sigrinum - Tap hjá Sveindísi
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Þorleifur Úlfarsson var hetja Loudoun United þegar liðið vann Brooklyn í USL deildinni í Bandaríkjunum í nótt.

Hann skoraði eina markið með skalla eftir fyrirgjöf úr aukaspyrnu eftir 26 mínútna leik.

Hann var tekinn af velli eftir rúmlega klukkutíma leik en hann missti af síðustu tveimur leikjum liðsins. Þetta var fyrsti sigur liðsins á tímabilinu en Loudoun er með 8 stig eftir átta umferðir.

Sveindís Jane Jónsdóttir var í byrjunarliði Angel City sem tapaði 2-1 gegn San Diego Wave í NWSL deildinni í Bandaríkjunum. Angel City er í 9. sæti með 9 stig eftir sjö umferðir.


Slapp
banner