Gleðilegan mánudaginn. Það verður nóg um að vera í íslenska boltanum í dag.
Í 2. deild karla klárast sjötta umferðin. Deildin var gríðarlega jöfn og spennandi í fyrra og það stefnir allt í það að hún verði það aftur í ár. Selfoss getur komist aftur á toppinn í dag með sigri á KFG. Víðir Garði er í augnablikinu á toppnum með 13 stig og getur Selfoss komist upp að hlið þeirra með sigri á KFG á heimavelli.
Fjarðabyggð og Leiknir F. eru bæði með níu stig og hafa byrjað vel. Fjarðabyggð heimsækir Þrótt Vogum í dag og Leiknismenn fara á Sauðárkrók og mæta þar Tindastól.
Vestri, liðinu sem var spáð efsta sæti fyrir mót, fær ÍR í heimsókn. Vestri er með sex stig og ÍR með fimm stig.
Í 3. deild karla klárast einnig sjötta umferðin. KF og KV mætast klukkan 16:00 í toppslag. KF er í öðru sæti með 13 stig og KV í þriðja sæti með 12 stig.
Þá mætast Völsungur og Álftanes í 2. deild kvenna. Bæði lið eru með sex stig og mun sigurliðið fara á topp deildarinnar. Ef jafntefli verður niðurstaðan þá fer Álftanes á toppinn á markatölu.
Einn leikur er í 4. deild karla þar sem Fenrir og Stokkseyri mætast í C-riðli. Fenrir er með þrjú stig og Stokkseyri án stiga eftir fjóra leiki.
mánudagur 10. júní
2. deild karla
14:00 Þróttur V.-Fjarðabyggð (Vogaídýfuvöllur)
16:00 Tindastóll-Leiknir F. (Sauðárkróksvöllur)
17:00 Vestri-ÍR (Olísvöllurinn)
19:15 Selfoss-KFG (JÁVERK-völlurinn)
3. deild karla
13:00 Vængir Júpiters-Einherji (Fjölnisvöllur - Gervigras)
14:00 Höttur/Huginn-Augnablik (Vilhjálmsvöllur)
16:00 Sindri-Skallagrímur (Sindravellir)
16:00 KV-KF (KR-völlur)
2. deild kvenna
14:00 Völsungur-Álftanes (Húsavíkurvöllur)
4. deild karla - C-riðill - 4. deild karla
17:00 Fenrir-Stokkseyri (Hertz völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir