Liverpool leiðir kappið um Camavinga - Flick veit ekki hvað gerist með Rashford - Arsenal þarf að selja - Bruno ánægður hjá Newcastle
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
Óskar Hrafn: Hef fullan skilning á því að okkur sé spáð 6. sæti
„Flottasta treyja sem við höfum spilað í"
„Fór frá því að spila yfir í það að mega ekki vera með á æfingum“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Stærsti samningur í sögu Víkings
Gylfi vonast til að vera mættur til að vera í landsliðinu - „Vonandi sem lengst“
Jökull: Sumt var full harkalegt
Adolf Daði: Ber miklar tilfinningar til Stjörnunnar
Jói Kalli: Skiptir máli þegar deildin byrjar
Arnar: Þurfum að taka doktorsprófið í að verða alvöru lið
Siggi Höskulds: Megum ekki vera svona barnalegir í sumar
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Allur pakkinn dró Djuric norður - „KA er stórveldið á Akureyri"
Óskar Hrafn: Forréttindi að þjálfa þessa tvo ungu menn
Jökull: Eitthvað sem enginn hjá okkur sættir sig við
Leandro: Þegar maður stendur sig vel á Íslandi skapast ýmis tækifæri
Þrenna í fyrsta leik - „Þetta er það sem okkur hefur vantað"
   lau 10. júní 2023 18:12
Anton Freyr Jónsson
Heimir Guðjóns: Erum ekkert að henda inn handklæðinu þó við lendum undir
Heimir Guðjónsson. þjálfari FH
Heimir Guðjónsson. þjálfari FH
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Vonbrigði að vinna ekki leikinn. Mér fannst allar forsendur til þess í seinni hálfleik. Við fengum góð færi og það vantaði bara smá svona að menn væru að anda þegar menn voru að komast í góð færi og klára þau."


Lestu um leikinn: FH 2 -  2 Breiðablik

„Það er mikill karakter í liðinu og við höfum sýnt það í leikjum í sumar að við erum ekkert að henda inn handklæðinu þó við lendum undir. Við lentum 2-0 yfir á móti ríkjandi Íslandsmeisturum og komum til baka og vorum líklegir að vinna leikinn og svo fannst mér aðeins halla á okkur í dómgæslunni. Alex Freyr (Elísson) átti aldrei að klára þennan leik og markið sem var dæmt af okkur, mér fannst það mjög "soft"."

„Ég ætla ekkert að fara tjá mig um það. Við byrjuðum ágætlega svo bara eins og Blikarnir eru, með gott fótboltalið og þeir skoruðu góð mörk. Við náðum að koma til baka og þegar við komumst í gegnum fyrstu pressuna hjá þeim þá voru allir vegir færir."

Framundan er landsleikjahlé en það hefur verið leikið gríðarlega þétt í deildinni og líklega kærkomið frí fyrir liðin í Bestu deildinni. Hvernig ætlar FH að nýta það? 

„Við þurfum bara að blanda þessu saman. Æfa vel og líka gefa gott frí, það er náttúrulega búið að spila marga leiki þannig já bara svona blanda þessu saman."


Athugasemdir
banner
banner