Fotbolti.net
10.06.25 - 23:04
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kane: Ef þið kunnið reglurnar þá er þetta ekki hendi

Jude Bellingham

Jude Bellingham

Canon

Mynd: EPA

Englendingar töpuðu gegn Senegal í æfingaleik í kvöld en þeir voru ekki sáttir með dómara leiksins.

Harry Kane kom liðinu yfir snemma leiks en mörk frá Ismaila Sarr og Habib Diarra komu Senegal yfir. Jude Bellingham jafnaði metin undir lok leiksins en markið var dæmt af þar sem Levi Colwill fékk boltann í upphandlegginn áður en hann barst til Bellingham.
Æfingaleikir: Baulað á Englendinga - jafnt hjá lærisveinum Heimis gegn Lúxemborg
TENGT EFNI

Æfingaleikir: Baulað á Englendinga - jafnt hjá lærisveinum Heimis gegn Lúxemborg

„Ef þið kunnið reglurnar þá var þetta ekki hendi. Þetta hefði komið okkur aftur inn í leikinn og kannski hefðum við unnið," sagði Kane eftir leikinn.

Sky segir frá því að reglurnar segja að markaskorarinn megi ekki fá boltann í höndina undir neinum kringumstæðum. Colwill hefði þurft að snerta boltann viljandi með hendi svo það yrði dæmt af.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.