Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 10. júní 2026 21:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
2. deild: Jón Daði byrjaði í jafntefli - Dramatískur sigur hjá Fjölni
Jón Daði Böðvarsson
Jón Daði Böðvarsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Fannar Hreinsson skoraði dramatískt sigurmark fyrir Fjölni
Aron Fannar Hreinsson skoraði dramatískt sigurmark fyrir Fjölni
Mynd: Fjölnir
SJöunda umferð 2. deildar fór fram í kvöld. Haukar voru með fjögrurra stiga forystu á toppnum fyrir leiki kvöldsins.

Haukar fengu Kormák/Hvöt í heimsókn en Pere Belmonte kom gestunum yfir þegar hann skoraði af löngu færi þar sem Sveinn Óli Guðnason, markvörður Hauka, var mjög illa staðsettur. Guzman Díaz Scarone bætti öðru markinu við með glæsilegu skoti.

Jón Arnar Barðdal minnkaði muninn þegar skammt var til loka venjulegs leiktíma og hann fékk síðan vítaspyrnu stuttu síðar sem Daði Snær Ingason skoraði úr og bjargaði stigi fyrir Hauka.

Kári og Selfoss voru fjórum stigum á eftir Haukum fyrir umferðina. Liðin mættust í Akraneshöllinni og gerðu jafntefli. Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliðun í kvöld í fyrsta sinn síðan í 2. umferð. Viðar Örn Kjartansson byrjaði hins vegar á bekknum.

Fjölnir vann dramatískan sigur á KFA og jafnaði Kára og Selfoss að stigum. Víkingur Ó, Dalvík/Reynir og KFG unnu sterka sigra í botnbaráttunni.

Haukar 2 - 2 Kormákur/Hvöt
0-1 Pere Belmonte ('10 )
0-2 Guzman Díaz Scarone ('33 )
1-2 Jón Arnar Barðdal ('78 )
2-2 Daði Snær Ingason ('82 , víti)
Lestu um leikinn

Magni 0 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Áki Sölvason ('34 )
0-2 Elvar Máni Guðmundsson ('70 )

Þróttur V. 1 - 2 Víkingur Ó.
0-1 Asmer Begic ('37 )
1-1 Ismael Salmi Yagoub ('88 , Own goal)
1-2 Jökull Blængsson ('90 , Own goal)

Kári 2 - 2 Selfoss
0-1 Frosti Brynjólfsson ('46 )
0-2 Guðmundur Stefánsson ('81 )
1-2 Árni Salvar Heimisson ('83 )
2-2 Sigurjón Logi Bergþórsson ('86 )

KFG 1 - 0 Hvíti riddarinn
1-0 Guðni Rafn Róbertsson ('54 )

KFA 2 - 3 Fjölnir
1-0 Javier Montserrat Munoz ('45 )
2-0 Marc Sirvent Espi ('54 )
2-1 Orri Þórhallsson ('58 )
2-2 Þengill Orrason ('90 )
2-3 Aron Fannar Hreinsson ('90 )
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 7 5 1 1 21 - 8 +13 16
2.    Kári 7 3 3 1 21 - 12 +9 12
3.    Fjölnir 7 4 0 3 20 - 15 +5 12
4.    Selfoss 7 3 3 1 15 - 13 +2 12
5.    Kormákur/Hvöt 7 3 2 2 17 - 8 +9 11
6.    Dalvík/Reynir 7 3 1 3 8 - 12 -4 10
7.    KFA 7 3 0 4 19 - 15 +4 9
8.    KFG 7 3 0 4 11 - 20 -9 9
9.    Víkingur Ó. 7 2 2 3 12 - 18 -6 8
10.    Hvíti riddarinn 7 1 4 2 7 - 8 -1 7
11.    Þróttur V. 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
12.    Magni 7 1 1 5 6 - 25 -19 4
Slapp
banner