'Hrós til Magga, liðið hefur verið með afgerandi leikstíl og nokkuð stabílt í gegnum hans þjálfaraferil með liðið, sem er geggjað að sjá'
„Menn eru að koma rosalega vel undan fríinu, það kom á mjög góðum tímapunkti fyrir okkur. Þetta var búið að vera svolítið þungt í einhvern tímann og gengið illa. Svo náðum við í sigurleik fyrir frí, menn komust aðeins í burtu og náðu að hlaða batteríin. Meiddir leikmenn fengu tækifæri til að jafna sig aðeins, það hefur því verið mikil orka og kraftur á æfingum frá því að við byrjuðum aftur," segir Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, fyrir bikarleik liðsins gegn Lengjudeildarliði Aftureldingar.
Leikurinn í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins hefst klukkan 19:30 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld.
Leikurinn í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins hefst klukkan 19:30 og fer fram á Malbikstöðinni að Varmá í kvöld.
Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Stjarnan
Ég sá að Gummi Baldvin fór á sjóinn, náðu menn að koma byrjuninni á tímabilinu úr kerfinu og endurstilla sig?
„Ég held það. Það hefur verið trú og góður andi í hópnum þó að það hafi gengið illa og umræðan verið með öllu móti. Það tekur alltaf á, menn þurfa að keyra í gegnum það og þá er gott að komast aðeins í burtu og endurstilla sig. Ég get ekki betur séð en að menn hafi náð að gera það mjög vel, einhverjir fóru út, einhverjir fóru út á sjó og aðrir gerðu ekki neitt. Meiddir leikmenn voru í prógrammi, held það hafi heilt yfir gengið mjög vel."
Hrósar þjálfara andstæðinganna
Stjarnan og Afturelding mættust í Bestu deildinni í fyrra og endaði leikurinn í Mosfellsbæ með 3-0 sigri heimamanna. Hvað sástu í þeim leikjum og hefur þú séð þá eitthvað á þessu tímabili?
„Það er að einhverju leyti hægt að meta þá út frá því sem við mættum og sáum í fyrra. Hrós til Magga, liðið hefur verið með afgerandi leikstíl og nokkuð stabílt í gegnum hans þjálfaraferil með liðið, sem er geggjað að sjá. Stöðugleikinn er mjög flottur hjá ungum þjálfara sem er skemmtilegt. En það er smá munur samt á liðinu, það eru mannabreytingar og aðeins öðruvísi leikmenn. Ég reikna með að þeir mæti okkur með svipuðum hætti og í fyrra. Við töpuðum illa fyrir þeim í Mosfellsbæ, ég held það sé ekki nokkur maður í okkar liði sem heldur að þetta verði eitthvað auðvelt eða þægilegt."
Heilt yfir gott lið og lykillinn að stoppa fremstu menn
Er eitthvað sérstakt sem Stjarnan þarf að stoppa hjá Aftureldingu?
„Akkúrat núna þá er ég með rosalegan fókus á okkur sjálfum og að við byggjum okkur aftur upp hvað varðar sjálfstraust og takt í liðinu."
„Ég veit ekki nákvæmlega hverjir eru heilir í Aftureldingu, reikna með því að allir sem hafa verið tæpir komi inn; Axel Óskar, Holtan og mögulega Cogic. Þeir eru með hættulega menn fram á við, eru með tvo framherja (Joacim Holtan og Bart Kooistra) sem vilja og líður vel með að falla niður og eru líka góðir í því að hlaupa aftur fyrir. Lykillinn er að stoppa þeirra fremstu menn. Þeir eru líka með bræðurna í bakvörðunum (Aron Elí og Birki Má Sævarssyni) sem eru góðir í fótbolta, tvo góða miðjumenn sem eru mjög ólíkir og bæði vel spilandi og jaxla í hafsentunum. Þetta er öflugt lið og við þurfum að stoppa þá sem lið, þeir eru hugrakkir á boltann og við þurfum að taka það frá þeim, láta þeim líða aðeins verr í uppspilinu. Við viljum svo ná að særa þá áður en þeir komast í þétta blokk. Þegar þeir eru þéttir þá eru þeir margir fyrir framan markið sitt og það getur verið erfitt."
Reyndi að hugsa lítið um fótbolta
Í landsleikjafríinu ykkar, nýttir þú tímann til að horfa til baka á erfiðu byrjunina ykkar og þína stöðu? Var léttara yfir þér að hafa náð að klára leikinn hjá Þór upp á það að gera?
„Það var mjög gott að fá þennan sigur, þó svo að við lítum þannig á að við eigum að vinna leikinn, þá er maður alltaf ánægður með að ná því, sérstaklega þegar liðið spilar vel. Það tvennt saman var mjög gott að sjá."
„En ég er ekkert að „reflecta" á mína stöðu, hún er bara eins og hún er og ég pæli ekkert í henni. Ég mæti alla daga á morgnana til að gera allt sem ég get til þess að hjálpa liðinu að verða betra. Það breytist ekkert sama hvernig gengur, ég held því bara áfram. Þannig er mín staða."
„Ég notaði fríið meira til þess að kúpla mig aðeins út, ná síðustu vikum út úr kerfinu til þess að vera ferskur þegar þetta færi af stað aftur. Ég reyndi frekar að halda aftur af mér í að vera hugsa um fótbolta. Maður er með þetta á heilanum alla daga, þannig ég reyndi að pæla minna í fótbolta í fríinu."
Vilja borga stuðningsmönnum til baka
Einhver skilaboð að lokum?
„Núna erum við komnir aftur í bæinn eftir leik úti á landi. Við höfum talað um að við viljum borga stuðningsmönnum okkar til baka fyrir góðan stuðning í gegnum erfiðan kafla. Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta og styðja okkur áfram svo strákarnir geta skilað til baka til stúkunnar," segir Jökull að lokum.




