Stjarnan heimsækir Aftureldingu heim í Mosfellsbæ í kvöld í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.
Stjarnan hefur átt undir högg að sækja í Bestu deildinni nú í upphafi tímabils. Liðið situr í 9. sæti deildarinnar með 10 stig eftir tíu leiki.
Garðbæingurinn Þorkell Máni Pétursson var gestur í Besta spjallinu hér á Fótbolta.net í síðustu viku og sagði leikinn gegn Aftureldingu vera gífurlega mikilvægan í ljósi þess hver staðan í deildinni sé.

Lestu um leikinn: Afturelding 0 - 0 Stjarnan
„Ef þeir vildu reka hann þá væru þeir búnir að því. Hefðu þeir tapað á móti Þór þá hefðu þeir verið komnir í þá stöðu að þeir gátu ekki gert neitt annað. Ég held að næstu tveir þrír leikir telji svolítið inn í þetta.“
„Við skulum vera heiðarlegir með það, tapi Stjarnan á móti Aftureldingu þá verður það rándýrt. Þá verður Evrópusætið orðið mjög óraunhæft,“ sagði Máni og bætti við að ef Stjarnan vinni Aftureldingu fengi Jökull smá andrými.