England og Kosta Ríka mætast í æfingaleik í Orlando í kvöld. Leikurinn átti upphaflega að hefjast klukkan 20 en hefur verið frestað um klukkutíma.
Ástæðan fyrir frestuninni er veðurfarið í Orlando. Það hafa verið þrumur, eldingar og hellirigning.
Ef það verður engin hætta á frekari eldingum mun leikurinn hefjast klukkan 21.
England hefur leik á HM þann 17. júní gegn Króatíu en liðið er einnig með Gana og Panama í riðli. Kosta Ríka er ekki með á HM í ár.
Byrjunarlið Englands: Pickford, James, Konsa, Stones, O'Reilly, Anderson, Rice, Madueke, Bellingham, Gordon, Kane
Varamenn: D. Henderson, Trafford, Guehi, Saka, Rashford, Livramento, J. Henderson, Burn, Mainoo, Rogers, Watkins, Eze, Toney, Spence, Quansah.
Here’s a look at the Inter&Co Stadium in Orlando ahead of England’s game against Costa Rica tonight ???? pic.twitter.com/xw0s6bacSs
— ITV Football (@itvfootball) June 10, 2026
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!


